Íbúðir í Reykjavík eftir hverfum og húsagerð

Gagnapakkinn inniheldur fjöldatölur um íbúðir í Reykjavík eftir hverfum og húsagerð. Gögnin eru byggð á fasteignamati ríkisins, frá Þjóðskrá Íslands. Hér er að finna eina heildarskrá fyrir öll árin, auk sér skráa fyrir hvert ár, frá 2001-2017.

Hver lína táknar fjölda íbúða eftir húsagerð fyrir hvern borgarhluta á ákveðnu ári.

Fyrsti dálkurinn inniheldur ár, annar dálkur inniheldur borgarhluta (t.d. Árbær, Grafarholt, Vesturbær og Kjalarnes) og þriðji dálkur inniheldur heildarfjölda íbúða í Reykjavík. Fjórði dálkur inniheldur fjölda einbýla (1 íbúð), fimmti dálkur inniheldur fjölda sambýla (2-5 íbúðir), sjötti dálkur inniheldur fjölda fjöldbýla (6 íbúðir og fleiri) og sjöundi dálkur inniheldur fjölda annarra íbúða.

Skýringar:
31. desember ár hvert.

_Norðlingaholtið talið með Árbænum og Úlfarsárdalurinn talinn með Grafarholtinu (2009-2011). _

Gögn og gagnaskrár

Viðbótarupplýsingar

Reitur Gildi
Síðast uppfært nóvember 26, 2025, 15:25 (UTC)
Stofnað nóvember 26, 2025, 15:24 (UTC)