Fjöldi fatlaðra barna á frístundaheimilum í Reykjavík, eftir frístundaheimilum

Gagnapakkinn inniheldur fjölda fatlaðra barna á frístundaheimilum í Reykjavík, eftir frístundaheimilum. Gögnin eru frá Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar. Hér er að finna eina heildarskrá fyrir öll árin, auk sér skráa fyrir hvert ár, frá 2011-2016.

Hver lína táknar fjölda fatlaðra barna á frístundaheimilum í Reykjavík fyrir sérhvert frístundaheimili á ákveðnu ári.

Fyrsti dálkurinn inniheldur ár og annar dálkur inniheldur heildarfjölda fatlaðra barna á frístundaheimilum í Reykjavík. Þriðji til áttundi dálkur innihalda fjölda fatlaðra barna á sérhverju frístundaheimili í Reykjavík (Askja, Frístundaklúbburinn Garður, Frístundaklúbburinn Hellirinn, Frístundaklúbburinn Hlíð, Frístundaklúbburinn Hofið og Frístundaklúbburinn Höllin).

Skýringar:
Fjöldi nemenda 1 október ár hvert.

Gögn og gagnaskrár

Viðbótarupplýsingar

Reitur Gildi
Síðast uppfært nóvember 26, 2025, 15:27 (UTC)
Stofnað nóvember 26, 2025, 15:26 (UTC)